Heimavist og mötuneyti MÍ
Áföst bóknámshúsinu eru heimavist og mötuneyti skólans. Á heimavistinni eru 33 einstaklingsherbergi með sturtu og snyrtingu, þar af nokkur sem geta verið tveggja manna. Vistarbúum er skylt að vera í mötuneyti skólans og fara eftir gildandi heimavistarreglum. Allir starfsmenn og nemendur skólans eiga þess kost að borða í mötuneytinu í hádeginu og er það mjög vel nýtt.
Gjaldskrá mötuneytis og heimavistar:
Fæðiskostnaður
- Helsti útgjaldaliður aðkomunemenda er fæðiskostnaður. Mötuneytisgjald er 40.000 kr. á mánuði fyrir morgunverð og 5 heitar máltíðir á virkum dögum í hádegi og á kvöldin.
- Matarkort fyrir aðra nemendur en vistarbúa kosta á vorönn 2022:
- Annarkort kr. 77.300
- Ekki er matur 09.02., 18.02., 21.02., 22.03 og 21.04.
- Hægt er að skipta greiðslu í fjóra hluta.
- Tíu máltíða kort kr. 10.000
- Stök máltíð kr. 1.200
Heimavist
- Húsaleiga á heimavist fer eftir stærð og gæðum herbergja og er á bilinu 34.000-44.000 kr.
- Gerður er húsaleigusamningur við heimavistarbúa, heimavistarbúar geta sótt um húsaleigubætur til lækkunar á húsnæðiskostnaði.
- Þráðlaust net er um alla vistina.