Gjaldskrá 2020-2021
Innritunargjald í dagskóla
- Innritunargjald í dagskóla er 6.000 kr. og þjónustugjald dagskólanema er 9.000 kr. Öllum nemendum skólans er skylt að greiða þetta gjald.
Efnisgjald í verklegum áföngum
- Nemendur í verknámi greiða að auki sérstakt efnisgjald í ákveðnum verklegum áföngum og byggir það á efniskostnaði hvers áfanga.
Nemendafélagsgjald
- Nemendafélagsgjald er 6.500 kr. hvora önn, en er valkvætt.
Fæðiskostnaður
- Helsti útgjaldaliður aðkomunemenda er fæðiskostnaður. Mötuneytisgjald er 40.000 kr. á mánuði fyrir morgunverð og 5 heitar máltíðir á virkum dögum í hádegi og á kvöldin.
- Matarkort fyrir aðra nemendur en vistarbúa kosta á haustönn 2020:
- Annarkort kr. 64.000 - 81 máltíð á tímabilinu 24.08. - 11.12.
- Ekki er matur 29.09. 16.10. 19.10 og 11.11.
- Hægt er að skipta greiðslu í fjóra hluta
- Tíu máltíða kort kr. 9.000
- Stök máltíð kr. 1.100
Heimavist
- Húsaleiga á heimavist fer eftir stærð og gæðum herbergja og er á bilinu 30.500-42.000 kr.
- Gerður er húsaleigusamningur við heimavistarbúa, heimavistarbúar geta sótt um húsaleigubætur til lækkunar á húsnæðiskostnaði.
- Þráðlaust net er um alla vistina.