Fjarnám
Margir áfangar sem kenndir eru í Menntaskólanum á Ísafirði eru einnig í boði í fjarnámi. Í fjarnámi er notað fjarkennslukerfið Moodle sem vistað er á heimasíðu skólans. Á Moodle setja kennarar inn kennslu- og námsáætlanir og verkefni. Nemendur geta skilað inn úrlausnum verkefna sinna þar sem og tekið gagnvirk próf.
Í kennslu við Menntaskólann á Ísafirði er lögð áhersla á leiðsagnarmat sem felst í því að nemendur fá stöðugar upplýsingar um stöðu sína í námi til að geta bætt sig. Leiðsagnarmat (e. Formative Assessment) er kennsluaðferð þar sem nemendur eru metnir jafnt og þétt alla önnina með það að markmiði að nota niðurstöðurnar til að bæta námsárangur og kennslu. Leiðsagnarmatið er námsmat til að læra af og getur bæði verið skriflegt og munnlegt. Kennarinn gefur nemandanum leiðandi umsögn sem nýtist nemendum við áframhaldandi nám.
Hverri önn er skipt niður í tvær námslotur. Eftir fyrri lotuna er gefið miðannarmat.
Skráningu í fjarnám á haustönn lýkur 15. ágúst.