Í skólanum er gróskumikið félagslíf. Kjörin stjórn nemendafélagsins hefur yfirumsjón með félagslífinu og frumkvæði að nýjungum. Á vegum nemendafélagsins starfa ýmiss ráð og nemendafélagið sér um útgáfu skólablaðs. Þriðjubekkjarráð rekur verslun í skólanum til fjáröflunar fyrir útskriftarferð.
Stjórn Nemendafélags Menntaskólans á Ísafirði (NMÍ) veturinn 2022-2023
Formaður NMÍ: Viktoría Rós Þórðardóttir
Gjaldkeri: Weronika Anikiej
Ritari: Halla María Ólafsdóttir
Málfinnur: Jón Karl Ngosanthiah Karlsson
Menningarviti: Eydís Ósk Kristjánsdóttir
Formaður vídeóráðs: Sudario Eidur Carneiro
Formaður leiklistarfélags: Sigrún Aðalheiður Aradóttir
Fulltrúi nýnema: Jón Gunnar Kanishka Shiransson
Fulltrúi verknámsnema: Svandís Rós Ívarsdóttir
Lög Nemendafélags Menntaskólans á Ísafirði
Hér er að finna lög Nemendafélags Menntaskólans á Ísafirði.
Nýnemaferð
Árlega er farið með nýnema í náms- og samskiptaferð til þess að gefa nýnemum kost á að kynnast. Nemendur koma frá mörgum byggðakjörnum í skólann og þekkjast ekki mikið innbyrðis. Síðastliðin ár hefur verið farið á Núp og gist eina nótt. Farið er í göngu- og kynnisferðir, leiki og íþróttir undir stjórn kennara og svo er kvöldvaka með skemmtidagskrá þar sem nemendafélagið kemur og kynnir hlutverk nemendafélagsins og hvað er í boði í félagslífinu.
Sólarkaffi
Árlega í kringum 25. janúar ár hvert er sólarkaffi MÍ. Þá er nemendum boðið upp á rjómapönnukökur og annað gott meðlæti á sal í boði skólans. Þriðju bekkingar sjá um veitingar og er þetta liður í fjáröflun þeirra.
Árshátíð
Í febrúar ár hvert er haldin árshátíð skólans. Þá mæta nemendur og kennarar prúðbúnir til hátíðarkvöldverðar með skipulagðir dagskrá. Nemendur og kennarar sjá um skemmtiatriði og svo er dansleikur á eftir.
Morfís
Til margra ára hefur MÍ keppt í Morfís mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskólanna.
Gettu betur
Spurningarkeppni framhaldsskólanna Gettu betur er vinsælt keppikefli nemenda í MÍ og draumurinn um að komast í sjónvarpssal rættist loksins skólaárið 2015-2016. Markmiðið er ennþá að komast í úrslitin.
Starfsfólk kvatt
Daginn fyrir síðasta kennsludag mæta útskriftarnemendur prúðbúnir í skólann og kveðja starfsfólk skólans á kafffistofu þess með kökuveislu.
Útskriftarveisla
Nemendur standa fyrir sérstakri útskriftarhátíð með fjölskyldum sínum, starfsfólki skólans og afmælisárgöngum. Haldinn er sameiginlegur kvöldverður með dansleik á eftir. Hin síðari ár hefur hátíðin farið fram í íþróttahúsinu.
Cloaca
Útskriftarbók nemenda í MÍ. Þriðjubekkingar gefa út grínrit til heiðurs útskriftarnemum. Þar er gert góðlátlegt grín að útskriftarnemum og kennurum sem og teiknaðar grínmyndir af hverjum og einum.
Dimmision
Síðasta kennsludag fyrir próf mæta útskriftarnemendur í skólann uppáklæddir í furðufatabúning sem þau hafa yfirleitt saumað sjálf.
Skólablaðið
Til margra ára hefur verið gefið út skólablað í tengslum við Sólrisu. Sérstök ritnefnd sér um útgáfuna.
Sólrisuhátíð nemendafélagsins og uppsetning leikrits
Í mars er lista- og menningarvika í umsjá nemenda og hefur hún verið haldin árlega síðan 1975. Sérstök Sólrisunefnd sér um að skipuleggja viðburðina og leggur metnað sinn í að skipuleggja vikuna vel. Á meðan á hátíðinni stendur er m.a. rekið útvarp, MÍ-flugan. Á Sólrisu eru ýmsar uppákomur alla vikuna en hæst ber uppfærsla leikhóps MÍ sem frumsýnir leikrit í fullri lengd á Sólrisu og hefur það verið árviss viðburður frá árinu 1993.