TEH 103 - Teikningar og verklýsingar í húsasmíði

Undanfari: GRT 203

 

Áfangalýsing

Í áfanganum læra nemendur grunnatriðin í lestri byggingauppdrátta og fá þjálfun í að teikna verkstæðisunna byggingarhluta með áherslu á glugga, hurðir, innréttingar og tréstiga. Fjallað er um muninn á aðal- og séruppdráttum, mælikvarða þeirra, tilgang og einkenni. Gerð er grein fyrir hönnunarforsendum í byggingarreglugerð, stöðlum, verklýsingum og lögð áhersla á að þjálfa notkun og skilning á hvers konar verkgögnum sem tengjast verkstæðisunnum byggingarhlutum úr tré og tréefnum. Mikilvægt er að nemendur þjálfist í gerð rissteikninga við útfærslur deililausna og geri einfalda efnis-lista og kostnaðarútreikninga á grundvelli verkupplýsinga. Áfanginn er bæði ætlaður húsa- og húsgagnasmiðum og byggist aðallega á verkefnavinnu og útskýringum og umfjöllun kennara eftir því sem þörf er á. Mikilvægt er að nemendur tileinki sér sjálfstæð vinnubrögð við upplýsingaleit og gagnaúrvinnslu.


Áfangamarkmið

 

Að nemandinn:

  • Læri um verkstæðisunna byggingarhluta úr tré og helstu útfærslur þeirra
  • Geti lesið og unnið með teikningar af verkstæðisunnum byggingarhlutum
  • Geti rissað og teiknað einfalda glugga, hurðir, innréttingar og tréstiga

 

Atburðir
« Maí »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Næstu atburðir

Vefumsjón