NÁT 123
Eðlis- og efnafræði
Markmið
Að nemendur:
- kunni skil á orku sem kemur við sögu við hringrás vatns í náttúrunni
- þekki til orkunotkunar á heimilum
- þekki þróun atómkenningarinnar og gerð frumefna
- kunni skil á eiginleikum og samsetningu andrúmsloftsins og mengun frá brennslu
- þekki til rafhlöðu
- kunni skil á hreyfingu hluta eftir beinni línu
- þekki til kjarnorkuvinnslu
- kunni skil á rafsegulbylgjum og samskiptum með þeim
Áfanginn er byrjunaráfangi í tveimur greinum, efnafræði og eðlisfræði. Að honum loknum geta nemendur haldið áfram í EFN 103 og EÐL 103. Í efnafræðihluta er farið í helstu grunnatriði efnafræðinnar s.s. atómið, sameindir og jónir, frumefnin, lotukerfið, efnahvörf og efnajöfnur. Leitast er við að tengja efnafræðina umræðu í umhverfismálum. Eðlisfræðihlutinn fjallar um grunnatriði í hreyfifræði. Á þeim grunni er byggt í EÐL 103 og er áfanginn því nauðsynlegur undirbúningur fyrir þann áfanga. Einnig er farið í nokkur grunnatriði varmafræði. Undir lok áfangans verða skipulagðar ferðir í fyrirtæki í nágrenninu til þess að kynnast eðlis- eða efnafræði sem þar er notuð.
Athugasemd
Áfanginn er kjarnaáfangi.
