NÆR 103
Næringarfræði
Undanfari: Enginn
Markmið
Að nemendur:
-
öðlist þekkingu í grundvallaratriðum næringarfræði mannsins
-
læri að draga sjálfstæðar ályktanir um mataræði og neysluvenjur um hvað sé hollt og óhollt
-
skilji áhrif næringar og líkamsþjálfunar á heilsu
-
geti að loknu námskeiðinu nýtt sér manneldismarkmið fyrir Íslendinga til haga neyslu sinni á ábyrgan hátt sér og sínum til hagsbóta
Námslýsing:
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur öðlist þekkingu á grundvallaratriðum næringarfræðinnar og samspili næringar, heilsu og líkamsþjálfunar. Fjallað er um næringarþörf mannsins, næringargildi og samsetningu helstu matvara. Farið verður í uppbyggingu og samsetningu próteina, fitu og kolvetna. Fjallað verður um vatn, vítamín og steinefni og gerð grein fyrir gildi þessara efna í fæðunni. Matseðlar metnir og samdir og reiknað næringargildi út frá töflum. Fjallað er um áhrif matreiðsluaðferða á næringargildi. Ýmsir næringartengdir sjúkdómar ræddir.
