Gjaldskrá 2011-2012

  •  Innritunargjald í dagskóla er 5.500 krónur og er öllum nemendum skólans skylt að greiða þetta gjald. Þjónustugjald dagskólanema er 7.000 krónur.  Nemendur í verknámi greiða að auki sérstakt efnisgjald í ákveðnum verklegum áföngum og byggir það á efniskostnaði hvers áfanga.
  • Nemendafélagsgjald er 4.500 krónur hvora önn, en er valkvætt.
  • P-nemendur greiða 2.000 krónur fyrir hverja einingu fyrir áfanga sem er í boði en 6.000 krónur fyrir hverja einingu í áfanga sem ekki er kenndur á viðkomandi önn.
  • Helsti útgjaldaliður aðkomunemenda er fæðiskostnaður. Mötuneytisgjald veturinn 2011-2012 verður 20.000 krónur á mánuði fyrir morgunverð og 5 heitar máltíðir á viku auk aðgangs að skrínukosti á kvöldin og um helgar.
  • Matarkort fyrir aðra nemendur en vistarbúa kosta 5.800 krónur fyrir 10 máltíðir, en stök máltíð 700 krónur.
  • Húsaleiga á heimavist fer eftir stærð og gæðum herbergja og er á bilinu  26.000-30.000 krónur. Gömlu herbergin sem eru með sameiginlegum salernum og böðum kosta 20.000 krónur en eru ekki í boði nema hin séu fullsetin. Þráðlaust net er um alla vistina. Gerður er húsaleigusamningur við heimavistarbúa sem skólinn aðstoðar þá við að þinglýsa. Þar með eiga íbúar heimavistar rétt á að sækja um húsaleigubætur til lækkunar á húsnæðis­kostnaði.
Atburðir
« Maí »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Næstu atburðir

Vefumsjón