ENS 212
Lestur, hlustun og orðaforði
Undanfari: enska 202
Markmið:
Að nemendur
- geti lesið þyngri texta en í ENS 202, t.d. fræðitexta, bókmenntatexta með tiltölulega flóknum söguþræði, texta í dagblöðum og tímaritum eða alls kyns upplýsinga- og heimildaritum og á Netinu
- geti beitt mismunandi lestraraðferðum, þ.e. nákvæmnislestri, yfirlitslestri, hraðlestri og leitarlestri og viti hvenær hvað er viðeigandi geti notfært sér mismunandi hjálpargögn við lestur eftir því hver tilgangurinn er með lestrinum.
- geti sett saman flóknari setningaskipan í skriflega þættinum, sýnt fram á nákvæmari orðaforða og skipulegri framsetningu en í fyrri áfanga
Námslýsing:
Gerðar eru meiri kröfur til sjálfstæðra vinnubragða en í ENS 202. Lestur almennra og sérhæfðra texta sem ekki eru einfaldaðir svo sem skáld- og smásagna. Unnið með orðabók þar sem það á við. Aukin áhersla á að nemendur tjái sig frjálst og óbundið. Markvissar hlustunaræfingar. Áhersla lögð á að byggja upp og auka við hagnýtan orðaforða með margvíslegum æfingum á öllum færnisviðum. Enskt talmál æft, m.a. í tengslum við les- og hlustunarefni og einnig er markvisst unnið að talþjálfun í kennslustundum. Í skriflega þættinum er gerð krafa um flóknari setningaskipan, nákvæmari orðaforða og skipulegri framsetningu en í fyrri áfanga. Lokið er við yfirferð helstu undirstöðuatriða í málfræði.
