ÍSL 303
Undanfari: ÍSL 203/212
Markmið
Að nemandinn:- átti sig á skiptingu bókmenntasögunnar í tímabil óskráðra og skráðra bókmennta og átti sig á hvenær menn hyggja að einkum hafi verið lögð stund á hverja bókmenntagrein á tímabilinu 800-1550.
- þekki forna bragarhætti a.m.k. fornyrðislag, ljóðahátt og dróttkvæðan hátt.
- þekki helstu persónur hetjukvæðanna, hugmyndafræði þeirra og boðskap.
- geti tekið saman nokkrar vísur eddukvæða og dróttkvæðar vísur, skilið þær og skýrt vandlega og gert grein fyrir efni þeirra, heimsmynd og hugmyndafræði.
- þekki skáldamál dróttkvæða og eddukvæða, heiti og kenningar.
- kynni sér upphaf ritmennta á Íslandi, kannist við helstu skólasetur til forna, fræðirit, bókagerð og varðveislu handrita.
- þekki helstu sérkenni konungasagna, biskupasagna, samtíðarsagna, Íslendingasagna, Íslendingaþátta, fornaldarsagna Norðurlanda og riddarasagna.
- lesi a.m.k. eina viðamikla Íslendingasögu og geti gert grein fyrir efni hennar og hugmyndaheimi.
- geti aflað sér heimilda um tiltekið efni og skrifi um það ritgerð samkvæmt viðurkenndum reglum.
