ÍSL 103
Markmið
Að nemandi:- þjálfist í lestri ólíkra bókmenntatexta.
- geti beitt bókmenntahugtökum við greiningu texta í bókmenntum.
- þekki til algengustu fornsagna Íslendinga.
- kunni skil á algengustu formum íslenskra ljóða.
- búi yfir hæfni til að flytja mál sitt úr ræðupúlti á skýran hátt.
- skrifi fjölbreyttan texta samkvæmt ferilsritun.
- temji sér notkun orðabóka og annars efnis af bókasafni.
- bæti kunnáttu sína í stafsetningu og greinarmerkjasetningu.
- riti ritgerð þar sem reynir á góða málnotkun og þanþol tungunnar.
- læri úrvinnslu texta í ritgerðum.
- hafi hæfni til að vinna heimildaskrá í tengslum við ritgerðir.
Áfangalýsing
Bókmenntir: Nemendur lesa ólíka bókmenntatexta, bæði smásögur og brot úr stærri skáldverkum auk hinna fornu sagna. Farið verður í ýmis hugtök bókmenntafræðinnar við greiningu sagnanna.Málfræði: Lögð er rík áhersla á beygingarfræði nafnorða og lýsingarorða en auk þess þurfa nemendur að kynna skil á lýsingarorðum og undirflokkum fornafna auk smáorða.
Ritun: Nemendur þurfa að þekkja ferilsritun og kunna rita texta með upphafi, miðju og endi og skrifa að minnsta kosti eina kjörbókarritgerð auk fréttabréfa um ýmis málefni.
Tjáning: Ætlast er til að nemendur geti flutt texta úr ræðustól og tileinki sér í því sambandi skýra framsögn og geti fjallað um dægurmál jafnt sem sértæk efni.
Stafsetning: Nemendur koma til með að rifja upp ýmis atriði stafsetningarinnar enda lýkur áfanganum með lokaprófi í stafsetningu.
