Bókasafn MÍ
Bókasafn Menntaskólans á Ísafirði er skólabókasafn og er ætlað að vera upplýsingamiðstöð fyrir nemendur og kennara vegna náms og kennslu. Það er búið bókum og nýsigögnum auk annars safnkosts sem tengist kennslugreinum skólans og veita þannig aðgang að upplýsingum og heimildum vegna náms og kennslu og annarri þeirri starfsemi sem fram fer innan skólans.
Afgreiðslutími
Bókasafnið er opið alla skóladaga frá 08.00 til 16.00.
Lesaðstaða
Í tengslum við húsnæði safnsins er lesaðstaða fyrir 22 manns og 11 nettengdur tölvur (2 á aðalhæð). Bókavörður aðstoðar nemendur og kennara við heimildaleit í gögnum safnsins auk þess sem hægt er að fá aðstoð við að leita í gagnasöfnum annarra bókasafna m.a. í Gegni sem er landskerfi bókasafna. Vinstra megin hér á síðunni er að finna flýtileið inn á Gegni.
Bókavörður er Katrín Gunnarsdóttir, katrin@misa.is.
